Sunnudagaskóli kl. 11:00- Brúðuleikhús- stjórnandi Helga Stephensen -Allir
velkomnir. Börn og fullorðnir. Hafdís, Sirrí, Baldur og Hannes.
Brúðuleikhús í sunnudagaskólanum í Þorlákshöfn. Helga Stephensen mætir með
brúðurnar sínar. Oft var gaman en nú verður gaman og skemmtilegt.
Fullorðnir mega líka koma.
Sóknarprestur.
Þrjú umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í dag sem öll má rekja til skyndilegrar hálku. Skömmu fyrir hádegi missti ökumaður í Kömbunum á Suðurlandsvegi stjórn á fólksbifreið sinni með þeim afleiðingum að hann lenti utan í vegrið. Ökumaður var einn í bílnum og slapp hann án meiðsla en bifreið hans er töluvert skemmd.
Um eitt leytið valt pallbíll á Þorlákshafnarvegi skammt norðan við Eyrarbakkaveg. Bíllinn lenti utan vegar á toppnum, en ökumaður, sem var einn í bílnum, slapp án meiðsla. Bíllin var óökufær eftir óhappið.
Þriðja umferðaróhappið varð um tvö leytið þegar fólksbíll valt í hálku á Þorlákshafnarvegi skammt frá fyrri slysstaðnum. Ökumaður var einn í bílnum og slapp hann án teljandi meiðsla.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi má rekja öll þrjú óhöpp til skyndilegrar hálku sem virðist hafa komið ökumönnum á óvart.
Njóttu allra eiginleika Aloe Vera plöntunnar í heilsudrykkjunum frá Forever Living Products. Í stað þess að bæta örfáum dropum af Aloe Vera safa í framleiðslu sína eða nota blöðin eins og oft er gert, er aðaluppistaðan í öllum vörum frá Forever Living Products 100% kælimeðhöndlaður Aloe Vera Barbadensis safi. Ástæða þess að einungis er notaður safinn í vörurnar er að aðeins hann inniheldur hin eftirsóknarverðu efni jurtarinnar. Með því að drekka Aloe Vera safa daglega bætir þú meltinguna og upptöku næringarefna. Drykkurinn inniheldur meðal annars yfir 75 þekkt næringarefni, vítamín, steinefni, amínósýrur, ensím og jafnvel B-12 vítamín. Aloe Vera drykkurinn hefur marga góða eiginleika frá náttúrunnar hendi og má þar meðal annars nefna: bólgueyðandi, sýkladrepandi, sveppadreppandi, kælandi og kláðastillandi.
Aloe Vera Gel
Aloe Vera Barbadensis Miller hefur verið kölluð kraftaverkaplantan og er safi hennar án efa einn fullkomnasti næringardrykkur náttúrunnar. Safinn inniheldur yfir 75 tegundir næringarefna: vítamín, steinefni, amínósýrur, ensím og B-12 vítamín, sem sjaldan finnst í jurtum. Aloe Vera safinn frá Forever Living Products er framleiddur með sérstakri einkaleyfisaðferð og hefur náð að festast í sessi sem helsti valkostur margra til að viðhalda heilbrigði meltingu, úthaldi og orku. Ráðlagður dagskammtur er 2-3 cl.
Aloe Berry Nectar
Aloe Vera Gel blandað með trönuberjum. Trönuber hafa frá fornu verið notuð af indjánum í lækningaskyni, þau eru sögð hreinsa líkamann og þá sérstaklega nýrun. Aloe Berry Nectar er einnig ríkur af C- og A- andoxunarvítamínum, kalíum og pektíni, sem stuðla að hreinsun meltingarvegarins. Gæti haft góð áhrif á þá sem eru með þvagrásarvandamál s.s. blöðrubólgu, því trönuberin hindra sýkla í að ná fótfestu í þvagrásinni. Ráðlagður dagskammtur er 2-3 cl.
Áhugasamir gefa haft samband við Stefán á netfangið stebbi@tonlist.net
Áramótabrenna á svæði
fyrir ofan Skötubót kl. 17:00
Flugeldasýning hefst kl. 17:30
Gleðilegt ár.
24. desember aðfangadagur.
Aftansöngur kl. 18:00
Hátíðarsöngur Bjarna Þorsteinssonar. Kirkjukór Þorlákskirkju.
Einsöngur Guðrún Ingimarsdóttir. Organisti og kórstjóri Hannes Baldursson.
Prestur Baldur Kristjánsson
Hjallakirkja Jóladagur
Hátíðarmessa kl. 14:00.
Hátíðarsöngur Bjarna Þorsteinssonar. Kirkjukór Þorlákskirkju.
Organisti og kórstjóri Hannes Baldursson.
Prestur Baldur Kristjánsson
Strandarkirkja 3ja í jólum sunnudag 27. desember.
Hátíðarmessa kl. 14:00.
Hátíðarsöngur Bjarna Þorsteinssonar. Organisti og kórstjóri Hannes Baldursson.
Prestur Baldur Kristjánsson
„Allir eru komnir í jólaskap, en þetta mál er búið að plaga okkur í mörg ár og standa í vegi fyrir uppbyggingu hér í Þorlákshöfn,“ segir Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, en hafist var handa við það í gær að flytja lyktareyðandi búnað að skreiðarverkunarverksmiðju Lýsis í Þorlákshöfn.
Um er að ræða tvo stóra tanka sem hafa verið í smíðum hjá vélsmiðju Héðins í Hafnarfirði, sem hefur sérhæft sig í lykteyðandi lausnum fyrir fráveitur sveitarfélaga.
Uppsetning búnaðarins mun taka nokkrar vikur en að því loknu ættu Þorlákshafnarbúar að vera lausir við „peningalyktina“ sem lagt hefur yfir bæinn frá skreiðarverkuninni, íbúum til mikils ama. Hefur það að auki tekið nokkurn tíma að fá leyfi til að setja búnaðinn upp.
Lykteyðingarbúnaðurinn byggir á umhverfisvænu íslensku hugviti, sem Kjartan Örn Ólafsson, svæðisstjóri Lýsis í Þorlákshöfn, á heiðurinn af ásamt starfsmönnum Héðins.
Körfuknattleikssambands Íslands sem munu æfa um hátíðarnar.
Það er ánægjulegt hve margir drengir voru valdir í æfingahópa hjá unglingalandsliðum KKÍ frá Þór Þorlákshöfn en þrjú drengjalandslið munu æfa um jólin. Erlendur Ágúst Stefánsson f.´95, Halldór Garðar Hermannsson f. ´97 og Þórarinn Friðriksson f. ´95 voru valdir til æfinga hjá U15 ára (f. 1995) landsliðinu. Emil Karel Einarsson ´94 var valinn til æfinga hjá U16 ára (f. 1994) landsliðinu en Emil keppti á síðasta Norðurlandamóti í Svíþjóð með drengjum f. 1993. Einnig var Þorsteinn Már Ragnarsson f. ´93 valinn í æfingahóp U18 ára (f. 1992) landsliðsins en hann keppti með U16 ára landsliðinu síðastliðið vor á Norðurlandamótinu ásamt Emil. Unglingaliðin frá Þór hafa verið í samstarfi við Hamar í vetur og hafa verið á meðal 5 bestu liða landsins í A riðli Íslandsmótsins og er það frábær árangur að hafa svo marga afreksmenn í landsliðshópum. Þess má geta að tveir Hamarsmenn voru valdir í 18 ára liðið.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Þórs
13.desember
3.sd. í aðventu. Sunnudagaskóli kl. 11:00.
Kvöldmessa kl. 20:00. Látinna minnst. Orgelspil. Hugleiðing. Sóknarprestur
Tónar og Trix verða með jólastund á Egilsbraut 9, laugardaginn 12. desember klukkan 14.
Ekki missa af ánægjulegri stund við tónlistarflutning og kósíheit.
Vinnustofan Unubakka 4
Kynning á starfseminni verður föstudaginn 11. desember frá kl. 10-16
Allir velkomnir
Heitt kakó og hlýtt viðmót.