Bæjarlíf - brosandi blað

Fjölbreytt dagskrá Tóna við hafið í vetur. (olfus.is)
Nú er undirbúningur vetrardagskrár Tóna við hafið í Þorlákshöfn senn á enda og hægt að byrja að njóta tónleikanna. Fjölmargir hafa sýnt áhuga á að koma til Þorlákshafnar og halda tónleika fyrir íbúa á Suðurlandi. Flestir tónleikanna verða í sal Ráðhúss Ölfuss en nokkrir verða í Þorlákskirkju, m.a. tónleikar í október með sópransöngkonunni Guðrúnu Ingimarsdóttur sem búsett er í Þýskalandi. Stórtónleikar verða í Ráðhúsinu í nóvember þegar sex manna blásarasveit ásamt söngkonunni Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Söngfélagi Þorlákshafnar troða upp, en Söngfélagið fagnar 50 ára afmæli sínu á þessu ári. Það er margt fleira sem verður á boðstólum í vetur, en auk austur evrópskrar þjóðlagatónlistar, popptónlistarmanna, söngtónleika, suðrænnar sveiflu og jazz verður í annað skipti efnt til músíkmaraþons í apríl og að venju lýkur vetrardagskránni með uppsetningu á söngleik næsta vor. Ragnheiður Gröndal, Egill Ólafsson og eyðibýlin En fyrstu tónleikar vetrarins verða föstudaginn 10. september, þegar söngvararnir Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson ásamt hljóðfæraleikurunum Sigurði Flosasyni, Kjartani Valdemarssyni og Matthíasi Hemstock flytja lög Sigurðar Flosasonar við ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Ljóðin komu fyrst fram í ljósmynda- og ljóðabók skáldsins og ljósmyndarans Nökkva Elíassonar; „Eyðibýli“ árið 2004. Tónlistina er að finna á hljómdiski sem kom út fyrir síðustu jól undir yfirskriftinni „Það sem hverfur“. Lögin hverfast um horfinn heim íslenskra eyðibýla; húsin, hlutina sem urðu eftir, fólkið sem fór og hina framliðnu sem e.t.v. eru enn á stjái. Þarna renna saman jazz, popp, klassík og þjólagatónlist og skapa bræðing sem hæfir efninu vel. Tónleikarnir eru í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn og hefjast klukkan 20:30.

Haustgleði (skolinn.olfus.is)
Haustdagurinn fór að þessu sinni fram í Íþróttamiðstöðinni og kepptu nemendur í boðhlaupi og langhlaupi. Árgangar kepptu sín á milli og kennarar og nemendur kepptu í kúluvarpi.

Íþróttakennararnir skipulögðu keppnina og íþróttaráð fylgdist vel með að allir færu eftir settum reglum.

Nemendur hvöttu bekkjarfélaga sína og voru einstaklega prúðir áhorfendur. Allir skemmtu sér konunglega.

Landeyjahöfn „eitt stórt klúður“ (visir.is)
„Þetta er bara eitt stórt klúður,” segir Grétar Mar Jónsson, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins, sem varaði mjög við byggingu Landeyjahafnar fyrir Herjólf. Grétar á að baki þrjátíu ára reynslu sem sjómaður og þegar hann sat á þingi talaði hann gegn því að Landeyjahöfn yrði byggð á þann hátt sem gert var.

„Ég taldi að þetta yrði aldrei nothæft. Núna er að koma í ljós a sandburðurinn er miklu meiri en reiknað var með,” segir Grétar. Hann lagði einnig til að fyrst farið var út í þetta verkefni að gamla höfn Herjólfs við Þorlákshöfn yrði varahöfn í minnst ár eftir að Landeyjahöfn væri tekin í notkun.

Utan sandburðar segir Grétar að veður og vindar hafi meiri áhrif á siglingar í Landeyjahöfn en reiknað hefur verið með. „Veðrið hefur verið tiltölulega gott hingað til. Við eigum eftir að sjá miklu meiri vind þarna. Þegar það kemur sunnan- eða suðvestanátt má búast við að þarna verði allt ófært jafnvel þó enginn sandur væri í höfninni,” segir hann.

Grétar og aðrir þeir sem gagnrýndu Landeyjahöfn voru útmálaðir sem úrtölumenn og sagðir ala á neikvæðni. Hann telur þó að Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, og aðrir þeir sem tóku illa í gagnrýnina hafi í einlægni sinni trúað því að verkefnið yrði farsælt. „Þetta leit ákaflega vel út á teikninborðinu. Þeir trúðu bara verkfræðingunum sem unnu þetta. Mér finnst þetta bara klassískt dæmi um að ekki er hlustað á fólk með reynslu,” segir Grétar.

Ástandið er mjög alvarlegt nú að mati Grétars. Eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun var hætt að niðurgreiða flug Flugfélags Íslands til Vestmannaeyja og þess í stað fer Ernir færri ferðir á minni vélum. Sjóleiðin er því sú leið sem reiknað er með að fólk nýti sér í mestum mæli. „Vestmannaeyingar eru komnir afturábak í samgöngumálum um tuttugu, þrjátíu ár,” segir Grétar.

Sú leið sem Grétar vildi upphaflega fara var að kaupa nýjan Herjólf sem væri hraðskreiðari þannig að ferðin tæki um níutíu mínútur.

Hann leggur nú til að gerður verði þjónustusamningur sem allra fyrst við Þorlákshöfn þannig að hægt verði að nýta hana þar til endanleg lausn finnst á málinu.

Innflutt hráefni til fiskvinnslu minnkar (mbl.is)
Innflutt hráefni til fiskvinnslu var 43.866 tonn árið 2009 og dróst saman í magni um tæp 87 þúsund tonn frá fyrra ári eða um 66%. Verðmæti þessa innflutnings var 6,2 milljarðar króna sem er tæplega 1,9 milljarða króna lægri fjárhæð en árið 2008 á verðlagi hvors árs.

Hagstofan segir, að verðmæti þessa innflutnings hafi verið 6,2 milljarðar króna sem sé tæplega 1,9 milljarða króna lægri fjárhæð en árið 2008 á verðlagi hvors árs og 38% lægri á föstu verðlagi ársins 2009 miðað við verðvísitölur sjávarafurða.

Minna var flutt inn af þorski, ufsa, karfa, norsk-íslenskri síld, kolmunna og rækju en árið áður. Innflutningur jókst á steinbít, hlýra og síld. Verðmæti innflutts hráefnis nam 9,6% af verðmæti þess afla sem tekinn var til vinnslu hérlendis.

Herjólfur getur ekki lengur siglt til Landeyjahafnar (visir.is)
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur getur ekki lengur siglt til Landeyjarhafnar, að mati Ívars Gunnlaugssonar skipstjóra, þar sem höfnin er orðin of grunn vegna framburðar á sandi og gosefnum, sem berst inn í höfnina.  Í síðustu ferð í gær, kenndi skipið grunns bæði á innleið og útleið og dró heldur úr ferð þess í annað skiptið.

Ferð Herjólfs, sem fara átti frá Vestmannaeyjum til Landleyjarhafnar klukkan hálf átta í morgun, var því frestað um óákveðinn tíma, jafnvel einhverja daga og er verið að kalla saman fulltrúa Eimskips, sem sér um reksturinn, Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar til að fjalla um málið.

Sanddæluskipið, sem dælt hefur úr höfninni til skamms tíma, er nú komið í verkefni vestur á fjörðum. Það kann þvi að vera lausnin að hefja siglingar til Þorlákshafnar á meðan þess er beðið, en eftir því sem Fréttastofan kemst næst er ekki búið að semja við hafnaryfirvöld þar, um að nota höfnina sem varahöfn fyrir Herjólf á fastalandinu.

Herjólfur hægði á sér í drullunni (mbl.is)
Fyrsta ferð Herjólfs frá Vestmannaeyjum í morgun, sem átti að vera kl. 07:30 féll niður og óvíst er um framhaldið vegna mikils sands í Landeyjarhöfn.

Ívar Gunnlaugsson, skipstjóri Herjólfs, ákvað að sigla hvergi í morgun eftir að skipið tók niðri í síðustu ferðinni í gær. Hann segir að mikill sandur hafi borist inn í Landeyjarhöfn og utan við hana og hann hafi fundið vel fyrir því á leiðinni inn og út í gær.

Að sögn Ívars er málið í höndum Vegagerðarinnar, Eimskips og þeirra sem að málinu koma. „Þeir funda um málið og komast að einhverri niðurstöðu. Ég hef komist að minni niðurstöðu,“ segir hann og bætir við að hann fari síðan eftir því sem honum verði sagt að gera.

Landeyjarhöfn var formlega opnuð 21. júlí sl. Ferðir féllu niður á föstudag og laugardag og segir Ívar að þá hafi veðrið sett strik í reikninginn, en skipið hafi líka verið farið að haga sér einkennilega í innsiglingunni. „Ég var mjög meðvitaður um að þetta gæti verið að gerast,“ segir hann. „Hann rétt hægði á sér í drullunni.“

Lærbrotnaði í bílveltu (ruv.is)
Kona lærbrotnaði þegar bíll hennar valt á Eyrarbakkavegi um hálf fimm  leytið í nótt. Hún var flutt með sjúkrabíl til Reykjavíkur en ekki er  vitað hversu mikið hún slasaðist að öðru leyti. Að sögn lögreglu er ekki  vitað með vissu hvernig þetta gerðist, en þó er grunur um  ölvunarakstur. Konan var ein í bílnum.

Uppskerumessa
Strandarkirkja    5.september

Uppskerumessa kl. 14:30. (Ath. óvenjulegan tíma)  Þakkað

fyrir uppskeru jarðar. Tónleikar kl. 15:00 Björg Þórhallsdóttir söngkona.

Sóknarprestur

Annað Íslandsmet hjá Hirti. www.sunnlenska.is
Þorlákshafnarbúinn Hjörtur Már Ingvarsson setti í morgun Íslandsmet í 200 m skriðsundi hreyfihamlaðra (S5) á Heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi.

Hjörtur Már er meðal keppenda Íslands á mótinu sem fram fer þessa vikuna í Eindhoven í Hollandi.

Hann synti 200 m skriðsund í morgun og varð í 12. sæti á tímanum 3:35,65 mín, sem er nýtt Íslandsmet.

Þetta er annað Íslandsmet Hjartar en á sunnudaginn synti hann 50 m skriðsund á 45,57 sek og var í 16. sæti í sundinu.

Mótinu lýkur á laugardag.

Ólafur Örn Ólafsson hefur tekið formlega við starfi bæjarstjóra Ölfuss
Ólafur Örn Ólafsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Grindavík, hefur tekið við starfi bæjarstjóra í Sveitarfélaginu Ölfusi.   Sigríður Lára Ásbergsdóttir, forseti bæjarstjórnar, afhenti honum lykla að skrifstofum bæjarfélagsins til merkis um að hann hefði tekið formlega við starfi.

Ólafur Örn er  52 ára að aldri, kvæntur Ásu Ólafsdóttur og eiga þau 4 börn, 2 syni og 2 dætur. Hann er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði og hefur undanfarin ár starfað sem bæjarstjóri í Grindavík.

Ólafur Örn er fæddur á Akureyri. Hann er með próf frá Stýrimannaskólanum í Vestmannaeyjum og útskrifaður útgerðartæknir frá Tækniskóla Íslands og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1986. Hann starfaði sem sjómaður og að háskólanámi loknu sem viðskiptafræðingur hjá Löggiltum endurskoðendum hf., Kerfi hf., Slippstöðinni hf. á Akureyri og Eimskipafélagi Íslands.  Ólafur Örn var forstöðumaður Eimskips í Kanada frá 1996 -2001 og bjó þá á Nýfundnalandi og aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Jysk Linen’s Furniture Ltd. í Vancouver 2002.