5 drengir úr Þór í unglingalandsliðshópum

Körfuknattleikssambands Íslands sem munu æfa um hátíðarnar.

 

Það er ánægjulegt hve margir drengir voru valdir í æfingahópa hjá unglingalandsliðum KKÍ frá Þór Þorlákshöfn en þrjú drengjalandslið munu æfa um jólin.  Erlendur Ágúst Stefánsson f.´95, Halldór Garðar Hermannsson f. ´97 og Þórarinn Friðriksson f. ´95 voru valdir til æfinga hjá U15 ára (f. 1995) landsliðinu.  Emil Karel Einarsson ´94 var valinn til æfinga hjá U16 ára (f. 1994) landsliðinu en Emil keppti á síðasta Norðurlandamóti í Svíþjóð með drengjum f. 1993.  Einnig var Þorsteinn Már Ragnarsson f. ´93 valinn í æfingahóp U18 ára (f. 1992) landsliðsins en hann keppti með U16 ára landsliðinu síðastliðið vor á  Norðurlandamótinu ásamt Emil.  Unglingaliðin frá Þór hafa verið í samstarfi við Hamar í vetur og hafa verið á meðal 5 bestu liða landsins í A riðli Íslandsmótsins og er það frábær árangur að hafa svo marga afreksmenn  í landsliðshópum. Þess má geta að tveir Hamarsmenn voru valdir í 18 ára liðið.

 Stjórn                                                                                                                                    körfuknattleiksdeildar Þórs

Róbert Karl Ingimundarson

About Robert