Þrjú umferðaróhöpp á Suðurlandi (mbl.is)

Þrjú umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í dag sem öll má rekja til skyndilegrar hálku. Skömmu fyrir hádegi missti ökumaður í Kömbunum á Suðurlandsvegi stjórn á fólksbifreið sinni með þeim afleiðingum að hann lenti utan í vegrið. Ökumaður var einn í bílnum og slapp hann án meiðsla en bifreið hans er töluvert skemmd.

Um eitt leytið valt pallbíll á Þorlákshafnarvegi skammt norðan við Eyrarbakkaveg. Bíllinn lenti utan vegar á toppnum, en ökumaður, sem var einn í bílnum, slapp án meiðsla. Bíllin var óökufær eftir óhappið.

Þriðja umferðaróhappið varð um tvö leytið þegar fólksbíll valt í hálku á Þorlákshafnarvegi skammt frá fyrri slysstaðnum. Ökumaður var einn í bílnum og slapp hann án teljandi meiðsla.

Að sögn lögreglunnar á Selfossi má rekja öll þrjú óhöpp til skyndilegrar hálku sem virðist hafa komið ökumönnum á óvart.

Stefán Þorleifsson

About Stebbi