Nám í boði

Hljóðfæranám

Við bjóðum upp á nám á eftirfarandi hljóðfæri:
Bassi
Blokkflauta
Gítar
Harmóníka
Hljómborð
Píanó
Trommur
Ukulele
Þverflauta

Fullt nám á grunnstigi 189.900.- (allt árið)
Hálft nám á grunnstigi 129.900.- (allt árið)
Fullt nám á miðstigi 209.900.- (allt árið)
Fullt nám á framhaldsstigi 239.900.- (allt árið)

Fjölskylduafsláttur er veittur (5% afsláttur af heildarupphæð)
Fullt nám er 1×50 mín eða 2x25mín
Hálft nám er 1x30mín

Námskeið:
Hljóðfæraleikur (30 mínútna einkatímar í 12 skipti) kr. 129.900.-
Hljóðfæraleikur (50 mínútna einkatímar í 12 skipti) kr. 209.900.-

Hljóðfæraleiga:
19.900 veturinn.  Ein önn kr. 11.700.-

Söngnám

Rytmískur sem og klassískur söngur. Í söng er lagavalið að stórum hluta í höndum nemandans og leitumst er við að þjóna áhugasviði nemandans.

Fullt nám á grunnstigi 189.900.- (allt árið)
Hálft nám á grunnstigi 129.900.- (allt árið)
Fullt nám á miðstigi 209.900.- (allt árið)
Fullt nám á framhaldsstigi 239.900.- (allt árið)

Fjölskylduafsláttur er veittur (5% afsláttur af heildarupphæð)
Fullt nám er 1×50 mín eða 2x25mín
Hálft nám er 1x30mín

Námskeið:
Söngur (30 mínútna einkatímar í 12 skipti) kr. 129.900.-
Söngur (50 mínútna einkatímar í 12 skipti) kr. 209.900.-

Kórskóli

Kórskóli Tónsmiðjunnar er hugsaður fyrir börn á öllum aldri.  Æfingar eru 8 talsins á hverri önn og er 8. skiptið notað sem tónleikar.  

Í kór lærir maður að vinna í hóp, syngja saman og hafa gaman, efla samvinnu og samkennd.  Efnisskráin hverju sinni er valin af stjórnendum og tekið mið af styrkleika hópsins.  Við setjum megin áherslu á íslenska tónlist.

Kórskólinn æfir á föstudögum:
I (4-6 ára) og II (6-8 ára) kl. 14:15 – 14:45
III (8-11 ára) og IV (11-15 ára) kl. 13:15 – 14:00

Stjórnendur Kórskóla Tónsmiðju Suðurlands eru Ingibjörg Erlingsdóttir & Stefán Þorleifsson.

Skólagjöld Kórskólans eru kr. 30.000 á önn.

Listnám

Furðugrímugerð:

Nemendur læra að hanna sína eigin grímu, smíða beinagrind úr bylgjupappa og klæða með pappamassa. Grímurnar eru síðan málaðar og skreyttar að vild. Á skreytingarstiginu mega nemendur koma með efni að heiman, eins og fjaðrir, textíl, glimmer, skrautsteina og þess háttar.
Kennt á föstudögum kl. 16:15 
Verð kr. 45.000 önnin.
Kennari: Sindri Mjölnir

Gróf tímalína

Vika 1-2: Námskeiðskynning og hugmyndavinna, nemendur teikna upp hönnun, reyna að fyrirsjá vandamál og undirbúa lausnir.

Vika 3-5: Beinagrind úr bylgjupappa og málningarteipi föndruð og mátuð.

Vika 6-8: Beinagrindin klædd með pappamassa.

Vika 9-11: Gríman máluð, lökkuð og skreytt.

Vika 12: Furðugrímuganga/sýning

Myndasögugerð:

Nemendur læra þá verkferla sem myndasögugerð felur í sér. Hugmyndavinna, skrif, hönnun, vinnsla og frágangur. Nemendur skrifa og teikna eigin myndasögu. Nemendum er frjálst að velja þann miðil sem hentar þeim best og gætu því þurft að skaffa eigin aðföng.
Kennt á miðvikudögum kl. 16:15
Verð kr. 45.000 önnin.
Kennari: Sindri Mjölnir

Gróf tímalína:

Vika 1-2: Námskeiðskynning, fyrirlestur um sögustrúktur og hugmyndavinna. Nemendur ákveða persónur, upphaf, miðju og endi.

Vika 3-4: Handrit skrifað, lengd myndasögu fundin út og myndstíll hannaður og vinnutímalína nemandans ákvörðuð útfrá því.

Vika 5-6: Persónur hannaðar og allir panelar rissaðir upp.

Vika 7-11: Myndasöguvinnsla. Hver panell teiknaður og unnin að standard sem miðast við getu nemanda og heildarlengd myndasögu. Nemendur vinna heima eftir þörfum.

Vika 12: Útgáfuhóf og sýning á verkum. Mögulega veitt verðlaun/viðurkenning fyrir bestu myndasöguna, besta handritið, og bestu teikningarnar?

Vatnslitun:

Nemendur læra ýmsa tækni við að vinna með vatnslitum og þá fjölbreitni sem miðillinn býður upp á. Farið verður yfir mismunandi pappírsgerðir, hvernig undirbúa á pappírinn og hvað maður gerir ef pappírinn þornar í bugðum. Grunntækni hefðbundinnar vatnslitamálunnar er kynnt, en meiri fókus verður á notkun vatnslita við teikningar, Line&Wash aðferðir og síðan stjörnuþoku og aðra abstrakt litunartækni.
Kennt á þriðjudögum kl. 16:15
Verð kr. 45.000 önnin.
Kennari: Sindri Mjölnir

Gróf tímalína:

Vika 1-2: Námskeiðskynning; skoðum alls konar vatnslitamyndir og kynnumst penslum, pappír, og lærum að undirbúa pappír og blanda liti.

Vika 3-4: Farið yfir grunntækni eins og vatnstjórnun, litaval, blautt á þurrt og blautt á blautt. Prófum að mála einfalda mynd með vatnslitum einum saman.

Vika 5-6: Kynning á Line&Wash aðferðum. Fókus á Line fyrst.

Vika 7-8: Kynning á Line&Wash aðferðum. Fókus á Wash fyrst.

Vika 9-10: Kynning á stjörnuþokuaðferðinni. Nemendur prófa sig áfram og teikna síðan og mála stjörnuþokuportrait.

Vika 11: Frágangur, ókláruð verk kláruð, lærum að slétta út bugðaðan pappír án þess að skemma málverkið.

Vika 12: Sýning á verkum.

Dýrateikningar:

Nemendur læra hvernig á að verða fær í að teikna hvaða dýr sem er, hvort sem það er til eða ekki. Námskeiðið er óháð miðli, svo nemendur nota það sem þeim þykir best (blýant, penna, ýmsa liti, osfr.), engin áhersla er að kenna sérstaka miðlatengda tækni.
Nemendum er kennt hvernig á að skoða viðfangsefnið, hvað þarf sérstaka eftirtekt svo að dýrið skili sér sem best á blaðið, hvort sem það er í realisma eða fígúru-formi.
Farið verður yfir líkamsform, beina- og vöðvabyggingu, algeng mistök, feld, fjaðrir og fleira. Að námskeiði loknu hafa nemendur í verkfærabeltinu þekkingu og aðferðir sem gera þeim kleift að læra sjálf að teikna hvaða dýr sem er.
Kennt á fimmtudögum kl. 16:15
Verð kr. 45.000 önnin.
Kennari: Sindri Mjölnir

Gróf tímalína:

Vika 1-2: Námskeiðskynning; teiknum okkar uppáhalds dýr, förum snögglega yfir grunnatriði í teikningum og skissuaðferðir.

Vika 3-4: Hundar, úlfar og refir. Lærum að brjóta líkamann niður í línur og kúlur. Vinnum útfrá ljósmyndum og skoðum hvernig listamenn hafa einfaldað formið í gegnum tíðina. Lærum rekjunaraðferðina og notum sem þjálfunartæki til að læra líkamsbyggingu.

Vika 5: Kattardýr. Skoðum muninn á köttum og hundum í byggingu og formi. 

Vika 6-7: Hestar og önnur hófdýr. Hvað er í gangi þarna?

Vika 8-9: Fuglar og leðurblökur. Lærum hvernig vængir virka, hvernig fjaðrirnar liggja og hvaða reglur má ekki brjóta.

Vika 10-11: Drekar, pegasus, griffin og aðrar furðuverur og skrímsli. Skoðum hvernig þessar skepnur eru búnar til úr eða byggðar á alvöru dýrum. 

Vika 12: Sýning á verkum.

Opna listasmiðjan

Opnunartími: Öll miðvikudagskvöld kl 19:30 – 21:30 frá og með 23. september

Lýsing:
Í Opnu listasmiðjuna er frjáls mæting og frjáls sköpun og allar listgreinar velkomnar.

Þetta er vettvangur fyrir listafólk 12 ára og eldri til að koma saman og skapa í félagslegu og hvetjandi umhverfi. Á staðnum er leiðbeinandi með fjölskrúðuga og þverfaglega reynslu í allskonar listsköpun.

Eins geta þátttakendur slegið sér saman með hin og þessi verkefni. Sem dæmi gæti einhver verið að prógramma tölvuleik og þá fengið tölvuteiknara í lið við sig til að skapa myndefni, tónlistarséní til að útfæra undirleik og rithöfund til að hjálpa við að skrifa söguhandrit.

Ekki þarf að skrá sig eða borga við fyrstu mætingu og verður listasmiðjan gjaldfrjáls fyrst um sinn. Seinna verður tekið upp vægt mánaðargjald.