Blandaður kór

Fyrsta æfing vetrarins verður nk. þriðjudag 14. september. Nánari upplýsingar koma síðar Kv. Stefán Senda á Facebook

Fyrir Marie :)

Æfa sig Senda á Facebook

Nýjungar í starfi Tónsmiðju Suðurlands

Nú er að hefjast nýtt skólaár í starfi Tónsmiðju Suðurlands. Fyrirtækið hefur verið starfrækt frá árinu 2004 og að eftirspurninni að dæma er ljóst að sunnlendinga þyrstir í tónlistarnám og eru ánægðir með að hafa val um fleiri en eina námsleið að settu marki. Sveitarfélagið Árborg, Ásahreppur, Rangárþing eystra og Skeiða- og Gnúpverjahreppur hafa undanfarin [...]

Skráning fyrir haustönn 2010

Nú er hægt að skrá sig fyrir komandi skólaár. Ýmis spennandi námskeið í boði. Senda á Facebook

Söngnemendur Tónsmiðjunnar á Blúshátíð á Hellu

Kristrún, Þuríður Marín og Margrét Harpa í góðum gír Senda á Facebook

Sumarleyfi

Þá er kennslu lokið þetta skólaár. Aðeins er eftir frágangur á húsnæði, kennslugögnum og senda út einkunnir þeirra er tóku próf. Þökkum við nemendum okkar kærlega fyrir skemmtilegan vetur. Vonandi sjáumst við aftur í haust. Gleðilegt sumar. Kennarar Tónsmiðjunnar Senda á Facebook

Nótan – uppskeruhátíð tónlistarskólanna

Laugardaginn 13. mars sl. var haldin uppskeruhátíð tónlistarskóla á öllu Íslandi.    Í þessum hluta uppskeruhátíðarinnar héldu tónlistarskólar landshlutatónleika, þ.e. svæðisbundna tónleika á fjórum stöðum á landinu, og buðu landsmenn velkomna sér að kostnaðarlausu.  Að uppskeruhátíðinni standa Félag tónlistarskólakennara, Félag íslenskra hljómlistarmanna og Samtök tónlistarskólastjóra. Tónsmiðja Suðurlands átti einn fulltrúa á þessum tónleikum, söngnemandann Kristrúnu Steingrímsdóttur.  Hún söng [...]

Nýir umsækjendur – ný námskeið

Þessa dagana er verið að vinna úr aðsendum umsóknum og munu kennarar hafa samband við ykkur svo fljótt sem auðið er. Ekki örvænta Senda á Facebook

Nýr trommukennari

Gunnar Jónsson trommuleikari hefur gengið til liðs við Tónsmiðju Suðurlands og mun sjá um trommukennslu nú frá áramótum. Um leið og við bjóðum Gunnar velkominn viljum við þakka feðgunum Bassa og Labba fyrir þeirra starf hjá Tónsmiðju Suðurlands. sþ Senda á Facebook

Kennsla á nýju ári

Fyrsti kennsludagur á nýju ári er þriðjudagur 6. janúar. Námskeið hefjast viku seinna. Senda á Facebook