Um Tónsmiðju Suðurlands
Tónsmiðja Suðurlands var stofnuð í Þorlákshöfn haustið 2003 og hefur sinnt tónlistarkennslu frá þeim tíma. Í fyrstu voru kennslugreinarnar þrjár, píanó, gítar og söngur en síðustu ár hefur þeim fjölgað til muna. Í dag býður Tónsmiðja Suðurlands upp á fjölbreytt nám í samvinnu við valin sveitarfélög á Suðurlandi auk margra spennandi námskeiða. Einnig er náin samvinna milli Tónsmiðju Suðurlands og Fjölbrautaskóla Suðurlands og hugur að byggja upp öfluga akademíska námsbraut þessara skóla. Tónsmiðja Suðurlands þjónar einnig Vallaskóla og tekur á móti hópum einu sinni í viku í svokallað samspil rafhljóðfæra.
Tónsmiðja Suðurlands
Eyravegi 67. Sími 615-2920 (Stefán)
Skólastjóri:
Ingibjörg Erlingsdóttir
GSM: 845-0015
Framkvæmdastjóri:
Stefán Þorleifsson
GSM: 615-2920
Reikningsupplýsingar:
0586-26-1685
Kt. 610404-3160
Eigandi: Tónkjallarinn ehf.
