Nám eða námskeið?

Meginmunurinn á námi og námskeiði liggur í því að nám er niðurgreitt af sveitarfélagi nemandans og er þar af leiðandi ódýrara fyrir nemandann.  Í námi eru nemandi og kennara einnig bundnir af því að fylgja námskrá tónlistarskóla frá menntamálaráðuneytinu.

Námskeið eru venjulega 12 vikna (3 mánuðir) og þar gefst nemendum á að stunda “hefðbundið’” nám sbr. hér að ofan og/eða einbeita sér að einhverju ákveðnu markmiði s.s. vinna með eigin tónlist eða eina ákveðna stefnu tónlistar.  Námskeiðunum eru engin takmörk sett hvað varðar innihald.

Eftirtalin sveitarfélög styrkja nemendur Tónsmiðju Suðurlands:

Árborg
Ásahreppur
Rangárþing eystra
Skeiða- og Gnúpverjahreppur